Þú ert hér: Heim
SKED-börur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 19. janúar 2012 20:35

Eftir tvö alvarleg vinnuslys um borð í fiskiskipum á síðasta ári þar sem bjarga þurfti einstalingum úr þröngum rýmum við erfiðar aðstæður kom það berlega í ljós að þörf var á sérhæfðum og meðfærilegum búnaði sem hægt væri að nota við slíkar aðstæður.

Nánar...
 
Útkall-áramót og þrettándi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Sunnudagur, 08. janúar 2012 19:46

                                                            Fyrsta útkall ársins 2010 barst slökkviliðinu rétt rúmlega fimm, aðfaranótt fyrsta janúar s.l. þegar tilkynnt var um eld í körum við Illugagötu 31.

Þar hafði eldur kviknað í körum sem notuð voru undir leifar af flugeldum og tertum sem skotið hafði verið upp fyrr um nóttina.  Varasamt getur reynst að stafla saman svona tertuafgöngum því glóð getur leynst í pappanum í töluverðan tíma eftir að búið er að skjóta þeim upp og því rétt að bleyta vel í þeim ef á að henda þeim í kör eða gáma strax eftir notkun.

Einhverjar minniháttar skemmdir urðu á grindverki sem körin stóðu upp við svo og á körunum sjálfum.

 

Nánar...
 
Útkall-Drífandi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 03. desember 2011 15:17

Allt tiltækt lið Slökkviliðs Vestmannaeyja auk slökkvibíls ISAVIA af flugvellinum var kallað út klukkan rúmlega þrú, aðfaranótt miðvikudagsins 30. nóv. s.l. þegar tilkynnt var um eld í Bárustíg 2 "Drífanda" en þar er til húsa bæði gistiheimili og bókaverslun.

Nánar...
 
Æfing í Herjólfi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Mánudagur, 28. nóvember 2011 23:46

herjolfur-frettSkemmtisnekkjan Herjólfur tók upp á því s.l. laugardag að bila og þurfti í framhaldinu að dúsa við bryggju í dágóðan tíma meðan unnið var að bráðabirgða viðgerð.

Nánar...
 
Eldvarnaátak LSS Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Föstudagur, 18. nóvember 2011 22:46

Slökkviliðsmenn hafa áhyggjur af berskjölduðum heimilum

Yfir helmingur heimila án reykskynjara, slökkvitækis eða eldvarnateppis. Um þriðjungur heimila með engan eða aðeins einn reykskynjara. Slökkviliðsmenn heimsækja yfir fjögur þúsund átta ára börn til að fræða þau og fjölskyldur þeirra um eldvarnir.

 

Slökkviliðsmenn hafa áhyggjur af því hve mörg heimili í landinu eru berskjölduð fyrir eldsvoðum. Allt of mörg heimili hafa engan eða of fáa reykskynjara. Þau fengju því litla eða enga viðvörun ef eldur yrði laus að næturlagi. Innan við helmingur heimila er með eldvarnabúnað sem slökkviliðsmenn telja lágmarksbúnað, það er reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Nú fer í hönd tími þegar eldhætta eykst á heimilum. Slökkviliðsmenn hvetja fólk því til að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana. Tveir létust í eldsvoðum á síðasta ári og eignatjón nam 1,7 milljarði króna.

 

Nánar...
 
Útkall-Ísnet Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 08. nóvember 2011 23:44

isnet-frettSlökkviliðið var ræst út laust eftir klukkan tíu í kvöld þegar tilkynning barst um að eldur logaði í síldarnót á plani netaverkstæðis Ísnets.

 

Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem logaði á tiltölulega litlu svæði en þó er ljóst að um töluverðar skemmdir er að ræða þar sem verð á svona veiðarfærum hleypur á tugum milljóna króna.

Nánar...