| Fyrsta helgarvakt sumarsins |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 13. júní 2009 12:54 |
|
Búið var að lofa Vinnslustöðvarmönnum þvotti á frystigeymslunni út á Eiði og var því ákveðið að byrja á því verkefni. Að því loknu var farið að birgðartönkum olíufélaganna þar sem vatni var hleypt á vatnsúðakerfið sem er í kringum tankana og virkni kerfisins prófuð og skoðuð.
Hægt er að hleypa á kerfið frá tveimur stöðum og virkaði allt eðlilega í öðrum brunninum en í hinum var orðin það mikil tæring að handfangið á öðrum lokanum var nánast horfið en samt var hægt að opna fyrir hann en hinn lokinn hleypti ekki neinu í gegn. Hins vegar hefði krafturinn og rennslið úr stútunum mátt vera jafnara og meira og spurning hvort ekki þurfi að yfirfara þá og hreinsa. Hitaveita Suðurnesja ætlar svo að sjá til þess að skipt verði um ónýtu lokana hið fyrsta.(myndir)
|



Fyrsta helgarvakt sumarsins var haldin í morgun og var góð mæting.