| Sumaræfingar |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 03. júní 2009 19:33 |
|
Þá fer að komast hreyfing á þetta hjá okkur aftur eftir stutt æfingahlé. Helgarvaktir/sumaræfingarnar eru komnar á síðuna (vinstra megin, neðst) og hefjast þær 13. júní og fá slökkviliðsmenn vaktapanið líka sent heim í pósti á næstu dögum. Eins og fram kemur á planinu þá er gert ráð fyrir að hver maður taki 4. helgarvaktir yfir sumarið þar sem viðveruskylda er frá laugardegi til mánudags. Ef menn, af einhverjum orsökum geta ekki staðið vaktir á þeim helgum sem þeir eru skráðir á er mjög mikilvægt að þeir skipti við einhvern annan og/eða láti yfirmann vita svo að vaktirnar verði alltaf fullmannaðar.
|


