Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-Brimhólabraut 27
Útkall-Brimhólabraut 27 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 23. maí 2009 01:57

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var ræst út kl: 01.21 í nótt af Neyðarllínunni með þeim skilaboðum að kviknað væri í útihurð á Brimhólabraut 27. en rétt í þann mund er fyrsti bíll var að leggja af stað barst afboðun þar sem sagt var að búið væri að slökkva eldinn.  Var samt ákveðið að fara á staðinn og líta á aðstæður.

 

Eldsupptök voru í

mottu framan við útihurð en líklegasta skýringin á eldsupptökunum er sú að sígarettubbi hafi verið hent út með fyrrgreindum afleiðingum.  Var það fyrir snarræði nágranna að eldurinn uppgötvaðist en einn þeirra greip með sér handslökkvitæki og náði að slökkva eldinn áður en meiri skaði hlaust af.

 

Einhverjar skemmdir urðu á hurðinni sem koma betur í ljós þegar birtir og lítilsháttar reykur barst inn í íbúðina sem var reykræst í kjölfarið.