| Síðasta vetraræfingin |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 09. maí 2009 12:41 |
|
Síðasta æfingin á þessum vetri var haldin í morgun og var farið með mannskap og tæki inn í Herjólfsdal í vatnsöflunaræfingu. (Ekki stóð til að fara í dalinn á þessari æfingu en þar sem hún Grýla (sem býr í dalnum) kom að máli við okkur í morgun og bað okkur um að vökva fyrir sig blettinn var ákveðið að gera kellingunni þennan greiða gegn því að hún hagi sér almennilega á næsta þrettánda.) Voru sogbarkalagnir lagðar frá tjörninni og tengdar bæði við bíl og lausa dælu(Rosenbauer) og vatninu síðan sprautað með monitorum og slöngum yfir svæðið en miklar jarðvegsframkvæmdir hafa staðið yfir undanfarið á tjaldsvæðunum í Herjólfsdal og því þótti upplagt að nota tækifærið og vökva aðeins í leiðinni svo allt verið gróið fyrir þjóðhátíð. Helgarvaktir sumarsins hefjast svo í júní en tímasetningar á þeim verða auglýstar síðar.
Einnig má benda á að mikið hefur bæst í myndasafnið hjá okkur, bæði nýjar og gamlar myndir og verið er að endurskipuleggja myndagallerýið og skipta því niður í ártöl og undirflokka sem mun vonandi gera skoðun og leit að myndum auðveldari. |


