Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall í tankskip
Útkall í tankskip Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Mánudagur, 04. maí 2009 21:20
(sjá myndagallerý)

 Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út kl: 18.07 í dag þegar tilkynning barst frá neyðarlínunni að kviknað væri í skipi í Friðarhöfn.

Skipið sem kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun er lýsisskipið West-Stream sem skrásett er í Nassau og þegar slökkviliðið kom á vetvang barst töluverður reykur frá vélarrúmi skipsins.

Tveir reykkafarar voru strax sendir

niður í vélarrúmið en fyrir voru þar þrír reykkafarar úr áhöfn skipsins og hafði þeim tekist að ráða niðurlögum eldsins, (sem seinna kom í ljós að hafði verið lítill) með duftslökkvitækjum þó svo þeir hafi ekki gert sér fyllilega grein fyrir því hvar eldsupptökin hefðu verið.

Mikill reykur/þoka var í vélarrúminu, bæði vegna brunans og eins vegna notkunnar á dufti og var því fljótlega farið í að reykræsta rýmið og kom þá í ljós líkleg skýring á eldsupptökum.  Hafði samsetning á pústgrein frá einni ljósavélinni farið í sundur með þeim afleiðingum að málningin í kringum pústgreinina hafði brunnið.

Ekki er vitað um frekari skemmdir þegar þetta er skrifað.(Myndir)

Síðast uppfært: Sunnudagur, 10. maí 2009 18:34