| Útkall í Sorpu |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Sunnudagur, 03. maí 2009 14:53 |
|
Slökkviliðið var ræst út kl: 03.23 í nótt þegar tilkynnt var um enn einn brunann í rusli við sorpeyðingarstöðina. Fyrstu upplýsingar sem við fengum voru á þann veg að um lítinn eld væri að ræða og aðeins væri þörf á einum bíl og þremur mönnum en þegar að var komið logaði glatt í stórri ruslahrúgu sem samanstóð að mestu leiti af bílhræjum og öðru járnarusli og ljóst var að umfangið væri töluvert meira en þeir sem tilkynntu eldinn hefðu gert sér grein fyrir.
Erfiðlega gekk að drepa í hrúgunni þar sem hún var gríðarstór og mjög erfitt og hættulegt fyrir mannskapinn var að reyna að komast að eldinum en ótrúlega mikill eldsmatur er í svona rusli m.a. dekk, innréttingar úr bílum o.fl . Voru starfsmenn Sorpu því fengnir til að slíta hrúguna í sundur með skotbómulyftara til að auðvelda aðgengi að eldinum. Formlegu slökkvistarfi lauk svo ekki fyrr en á áttunda tímanum í morgun en starfsmenn Sorpu eru enn að moka sig í gegnum hauginn til að hleypa út þeim hita sem enn kann að leynast undir honum.
Það er nokkuð ljóst að við höfum sloppið nokkuð vel fyrir horn í þetta skiptið því þrátt fyrir að veðrið hafi verið okkur hagstætt þá voru aðstæður allar mjög erfiðar því gríðarlegur eldsmatur var í þessum haug sem þó aðeins brann að litlum hluta og eins er svæðið sjálft illa skipulagt og erfitt yfirferðar. Ekki var það svo til að bæta það að aðeins náðist að ræsa út tæplega helminginn af liðinu.
Lögreglan handtók fljótlega í nótt aðila sem játuðu að hafa verið valdir að brunanum. (Myndir) (Frétt Stöðvar 2 um brunann má sjá hér)
|


