Þú ert hér: Heim Fréttir Góður styrkur
Góður styrkur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 23. apríl 2009 17:55

 Alþýðubandalag Vestmannaeyja boðaði á dögunum fulltrúa frá Slökkviliðinu, Björgunarfélaginu, Rauða Krossinum og fleiri félögum sem m.a. sinna líknar og velferðarmálum hér í Vestmannaeyjum á sinn fund, og var tilgangurinn sá að afhenda þessum félögum fjárstyrki.

 

Ragnar Óskarsson talsmaður þeirra Alþýðubandalagsfélaga sagði í ræðu sinni að forsaga málsins væri sú að þegar að Alþýðubandalagið hætti formlegri starfemi þá átti félagið í Vestmannaeyjum húseign sem ákveðið var þá að selja og láta andvirðið renna til hinna ýmsu félagasamtaka.

 

Það var svo ekki fyrr en nú nýlega sem húsið loks seldist, og í framhaldi af því bauð Alþýðubandalagið til kaffisamsætis þar sem forsvarsmenn hinna ýmsu félaga tóku við styrkjunum fyrir hönd sinna félaga.

Alls voru veittir styrkir til ellefu félagasamtaka á bilinu 300-500.000/kr. og fékk Slökkvilið Vestmannaeyja 300.000/kr styrk í sinn hlut sem nýttur verður til kaupa á björgunarbúnaði fyrir liðið.

 

Slökkvilið Vestmannaeyja vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Alþýðubandalags Vestmannaeyja fyrir þessa rausnarlegu gjöf.

(Á myndinni eru fulltrúar styrkþega ásamt fulltrúum Alþýðubandalagsins)

 

 

 

 

 

 

 

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 23. apríl 2009 19:19