Þú ert hér: Heim Fréttir Dæluæfing í Herjólfsdal
Dæluæfing í Herjólfsdal Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 11. apríl 2009 16:12

Slökkviliðsmenn fóru í morgun inn í Herjólfsdal og var tilgangurinn að æfa notkun á dælum við slökkvistarf.

Farið var með Rosenbauer dæluna og voru menn látnir leggja sogbarka úr tjörninni í Herjólfsdalnum og tengja þá við dæluna.  Síðan voru lagðar slöngur frá dælunni í monitora og mönnum kennd réttu handtökin við að sjúga vatnið upp úr tjörninni og koma því gegnum dæluna.

Æfingin tókst vel og mætingin var þokkaleg.