| Útkall í rútu |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 01. apríl 2009 04:40 |
|
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en ekki mátti miklu muna að verr færi því rútan stóð upp við bátaskýli Björgunarfélagsins en það er meðal annars notað sem flugeldageymsla. Voru rúður í bátaskýlinu þegar farnar að springa og klæðning farin að skemmast þegar slökkviliðið mætti á vettvang. Eldsupptök eru ekki ljós en ýmislegt bendir til þess að kveikt hafi verið í rútunni sem er að öllum líkindum ónýt. (Myndskeið frá slökkvistarfi má sjá á vef RUV-Suðurland) Tveir menn á tvítugsaldri eru nú í haldi lögreglu, grunaðir um verknaðinn.
|



Slökkviliðið var ræst út kl 03.31 í nótt þegar tilkynnt var um eld í rútu við Kaffi Kró, og þegar að var komið stóð rútan, sem er um 50. manna í björtu báli.