| Reykköfunaræfing? |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 28. mars 2009 11:55 |
|
Þegar á reyndi var mætingin hjá reykköfunarfærum mönnum hins vegar svo léleg að um tíma leit út fyrir að við þyrftum að hætta við, og var því ákveðið að fara yfir tækjabúnaðinn í dælubílunum í staðin. Lausar slöngur voru gerðar upp, skipt um rafhlöður í vasaljósum, talstöðvar athugaðar o.fl. Þegar á leið bættist hins vegar í hópinn og var þá ákveðið að fara einn hring í reykköfun og var æfingin með svipuðu sniði og síðast, þ.e. menn látnir rekja sig eftir bandi yfir og undir hindranir þar til takmarkinu var náð. Mætingin hjá þeim sem áttu æfingu hefði hins vegar mátt vera töluvert betri. |



Til stóð að halda aðra reykköfunaræfingu í húsnæði netagerðarinnar Ísnets í dag og setja upp þrautabraut á annari hæð hússins.