| Útkall í sjúkrahúsið |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 14. mars 2009 12:47 |
|
Svo vel vildi til að við vorum búnir að vera með æfingu um morguninn en nokkrir menn voru enn á stöðinni þegar ræst var út og voru því fjótir á vettvang. Þegar að var komið reyndist þó engin eldur vera laus en það sem gerðist var að þéttir í flúrljósi hafði sprungið og orsakað lítilsháttar bruna í ljósinu en við það myndaðist reykur sem setti brunaviðvörunarkerfi hússins í gang. Ekki reyndist þörf á neinum aðgerðum af hálfu slökkviliðsins en ljóst er að þarna bjargaði brunaviðvörunarkerfið og rétt viðbrögð ákveðinna starfsmanna miklu því engin starfsemi er á 3. hæðinni um helgar en þar eru m.a. skurðstofa, sjúkraþjálfun o.fl. Myndskeið frá Sighvati Jónssyni fréttaritara RUV má sjá hér. Ljósmyndir frá Fréttum má sjá hér. |



