| Reykköfun í Ísnet |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 28. febrúar 2009 13:08 |
|
Sett var upp þrautabraut þar sem menn voru látnir rekja sig eftir bandi sem lá um rýmið og var leiðin misgreið þar sem hún lá yfir nætur og netadræsur, undir hindranir og upp í hillurekka meðal annars. Fengu menn að taka vel á því og fóru flestir tvær ferðir fyrir utan tvær "hetjur" sem vildu fara þriðju ferðina í tímatöku, en leiðinni var breytt eftir hverja ferð og var það til þess að sumir rugluðust í rýminu við þá aðgerð þegar þeir héldu að þeir væru að fara sömu leiðina öðru sinni. Heppnaðist æfingin vel og allir komust í endamark áfallalaust og kunnum við Ísnetsmönnum bestu þakkir fyrir afnotin af húsnæðinu.(sjá myndir) |



Hörkufín reykköfunaræfing var haldin í morgun í húsnæði netagerðarinnar Ísnet.