Þú ert hér: Heim Fréttir Mikill eldsvoði á Manhattan
Mikill eldsvoði á Manhattan Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 24. febrúar 2009 18:13

Þessi frétt var á mbl.is

Slökkviliðsmenn berjast nú við mikinn eld sem logar í sex hæða íbúðarhúsi í Kínahverfinu á Manhattan-eyju í New York. Að minnsta kosti einn hefur látið lífið í eldsvoðanum og fimm eru lífshættulega slasaðir.

Alls hefur 21 slasast, þar af tveir slökkviliðsmenn. Eldurinn kviknaði um kl. 4 í nótt að staðartíma (kl. 9 að íslenskum).

Íbúarnir náðu að flýja út á götu. Margir eru aðeins klæddir í náttföt, en mjög kalt er í borginni.

Tæplega 200 slökkviliðsmenn eru á vettvangi. Eldsupptök liggja ekki fyrir.