Þú ert hér: Heim Fréttir Verðlaun í eldvarnagetraun
Verðlaun í eldvarnagetraun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 14. febrúar 2009 16:17

nullLSS efndi til árlegs Eldvarnaátaks í nóvember 2008 í samstarfi við TM, Brunamálastofnun, slökkviliðin, 112 og fleiri aðila.

 

Góð þátttaka var í Eldvarnagetrauninni, sem einnig birtist í barnablaði Morgunblaðsins. Nöfn 33 barna víðs vegar af landinu hafa verið dregin úr innsendum lausnum. Börnin fengu viðurkenningu og verðlaun sem voru afhent víða um land á 112-daginn, 11. febrúar.

 

 

Einn vinningshafanna var frá Vestmannaeyjum og mætti hann á slökkvistöðina á laugardaginn til að taka við sínum verðlaunum en vinningshafinn sem heitir Gísli Snær Guðmundsson er hér á myndinni með viðurkenningarskjalið .(sjá myndir)