| Sprenging í FES |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Fimmtudagur, 12. febrúar 2009 19:58 |
|
Slökkviliðið var ræst út kl: 19.14 í kvöld af Neyðarlínunni sem tilkynnti um sprengingu, og mikin reyk í fiskmjölsverksmiðju Ísfélagsins (FES). Þegar slökkviliðið kom á vettvang var lögreglan þegar mætt á staðinn með sjúkrabíl, því miðað við hvernig útkallið var orðað þá óttuðust menn að stóralvarlegir hlutir væru að gerast. Sá ótti reyndist hins vegar ástæðulaus, en það sem gerðist var að sprenging hafði orðið í einni mjölþurrkunni með þeim afleiðingum að þurrkusalurinn fylltist af reyk, en svona lagað kemur af og til fyrir í fiskimjölsverksmiðjum með misalvarlegum afleiðingum þó. Allt fór þó vel í þetta skiptið og voru starfsmenn langt komnir með að reykræsta salinn þegar slökkviliðið kom þannig að ekki var þörf á neinum aðgerðum. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. febrúar 2009 22:18 |



