| Furðulegt útkall |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Föstudagur, 06. febrúar 2009 17:50 |
|
Slökkviliðið var kallað út kl: 16.14 í dag af Neyðarlínunni og tilkynnt um eld í skúr við Vesturveg 19. Þegar komið var að reyndist eldurinn vera í útigeymslu við húsið og logaði þar í fatahrúgu á gólfinu.Greiðlega gekk að slökkva en einhverjar skemmdir urðu þó vegna reyks og hita.
Eldsupptök þykja nokkuð ljós, en vitni sáu börn á hlaupum frá skúrnum skömmu áður en tilkynnt var um eldinn.
Þetta útkall þætti kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sérstöku aðferð sem notuð var til að ræsa slökkviliðið út, en starfsmenn Neyðarlínunnar hringdu beint í slökkviliðsmenn, tilkynntu þeim hvar eldurinn væri og létu menn vita að sms-boðunarkerfið væri bilað. Voru sumir slökkviliðsmenn ekki alveg vissir um áreiðanleika þessara boða og héldu hreinlega að einhver væri að gera at í þeim.
Ekki vitum við hvort bilunin varð hjá Neyðarlínunni sjálfri eða einhverstaðar annars staðar í kerfinu, en hitt er annað mál að svona bilanir eru grafalvarlegar í tilfellum þar sem mínútur geta skipt máli, því eðlilega tekur mun lengri tíma að boða liðið út með þessum hætti heldur en með "sms" hópkalli, og þar fyrir utan verða menn að geta treyst því að sá sem hringir sé sá sem hann segist vera.
Ekki var búið að fá nánari upplýsingar um ástæðu bilunarinnar þegar þetta er skrifað. |


