Þú ert hér: Heim Fréttir 112 dagurinn 2009
112 dagurinn 2009 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 21:13

(Tekið af vef Brunamálastofnunnar)

112-dagurinn verður haldinn um allt land þann 11. febrúar næstkomandi eins og undanfarin ár. Samstarfsaðilar dagsins eru Neyðarlínan, Ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkvilið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, Landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir.

 

 

Að þessu sinni verður sjónum beint sérstaklega að börnum og

 

 ungmennum, öryggi þeirra og velferð. Markmiðið er annars vegar að halda á lofti því víðtæka öryggis- og velferðarkerfi sem börn og ungmenni hafa aðgang að í gegnum neyðarnúmerið. Einnig er ætlunin að benda á leiðir fyrir börn og ungmenni til þess að taka þátt í starfi samtaka á þessu sviði og stuðla að eigin öryggi og annarra, meðal annars með þekkingu í skyndihjálp, slysavörnum og eldvörnum.

  

Áhersla er lögð á að fjallað verði um daginn og efni hans í grunnskólum landsins. Neyðarlínan mun á næstunni senda öllum grunnskólum efni þar að lútandi og hvetja þá til þess að taka það með einhverjum hætti fyrir á 112-daginn.

  

Lögð verður áhersla á að æfa rýmingaráætlun í skólum, hafa sýnikennslu í skyndihjálp, sýna börnunum áhugaverðan búnað, kynna réttindi barna eða einfaldlega gera vart við sig á skólalóðinni og ræða við börnin í tilefni dagsins. Meðfylgjandi er þess vegna dæmigerð lýsing á því hvernig rýmingaráætlun fyrir skóla er unnin sem unnin er í samvinnu við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

  Dagurinn verður að venju vettvangur fyrir afhendingu verðlauna í Eldvarnagetraun LSS og útnefningu skyndihjálparmanns Rauða krossins. Ennfremur gefur Fréttablaðið út sérblað í tilefni dagsins og verður því dreift í yfir 100 þúsund eintökum um allt land.