| Stýrimenn í eldvarnafræðslu |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Föstudagur, 30. janúar 2009 12:07 |
|
Slökkviliðsstjóri tók að sér "gestakennslu" s.l. miðvikudag þegar hann heimsótti nemendur stýrimannaskólanns. Farið var yfir eðli og þróun elds, eldvarnir í skipum o.fl. auk þess sem nemendur voru látnir prófa reykköfunartæki, þeim kennt að setja þau á sig og umgangast á réttan hátt. Voru nemendur mjög áhugasamir og stendur til að taka nemendur vélskólanns í sams konar fræðslu á næstu dögum. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 21:26 |


