Þú ert hér: Heim Fréttir Slökkvistöð í ljósum logum
Slökkvistöð í ljósum logum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 30. janúar 2009 11:57

 Þessi frétt birtist á mbl.is

Eldur kviknaði í slökkvistöð í Japan í vikunni á meðan slökkviliðsmennirnir voru í útkalli. Einn þeirra var hins vegar eftir á stöðinni og

 var hann að elda kvöldmat þegar honum barst skyndilega neyðarkall. Hann rauk út en gleymdi að slökkva á eldavélinni.

Talsmaður slökkviliðsins í Nagoya segir að það hafi þurft 10 slökkviliðsbíla til að slökkva eldana sem loguðu í stöðinni.

„Við erum stofnun sem á að vera í þeirri stöðu að kenna fólki að umgangast eld. Okkur þykir því leitt að þetta skuli hafa komið fyrir,“ sagði talsmaðurinn og bætti við að slökkviliðsmennirnir muni héðan af láta senda sér mat.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 22:16