| Rýming íþróttamiðstöðvar |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Fimmtudagur, 22. janúar 2009 18:55 |
|
Slökkviliðsmenn fóru í dag í Íþróttamiðstöðina og var tilgangurinn að rýma húsnæðið eins og um neyðartilvik væri að ræða.
Greinarhöfundur og slökkviliðsstjóri mæltu sér mót við forstöðumann og var ákveðið að rýma húsið kl: 11.15 en tíminn var valin með það að markmiði að sem mest starfsemi væri í húsinu þ.e. börn og unglingar í leikfimi- og sundkennslu. Brunaviðvörunarkerfi hússins var svo ræst á tilsettum tíma og þustu börn og kennarar út úr húsinu um þær dyr sem næstar voru og gekk rýmingin sjálf vel og voru allir kominir út út húsi á skömmum tíma, en starfsmenn íþróttamiðstöðvarinnar gengu svo um ganga og búningsherbergi og fullvissuðu sig um að allir hefðu yfirgefið húsnæðið. Að okkar mati gekk æfingin vel fyrir sig að flestu leiti og tæmdist húsið á skömmum tíma þrátt fyrir að brunabjöllur hafi vantað á nokkra lykilstaði, og kvörtuðu starfsmenn yfir því að ekki hefði heyrst nógu vel í kerfinu allstaðar í húsinu. Forstöðumaður var þó fullur áhuga og skrifaði allt niður hjá sem betur mætti fara, og höfum við fulla trú á því að hann kippi þeim athugasemdum sem við gerðum fljótt og vel í lag. |


