| Eldvarnaæfing á Hraunbúðum |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 21. janúar 2009 00:00 |
|
Slökkviliðsstjóri, Ragnar Þór Baldvinsson og Grímur Guðnason hjá slökkvitækjaþónustunni fóru í dag í heimsókn á Hraunbúðir, dvalarheimili aldraðra og voru með eldvarnaæfingu og kynningu á brunavörnum fyrir starfsfólk.
Farið var yfir helstu atriði er lúta að brunavörnum heimilis og stofnanna s.s. eðli elds, notkun eldvarnateppa, handslökkvitækja, rýmingu, hólfun og fleira. Síðan var farið með starfsfólkið út og það látið slökkva elda með handslökkvitækjum.
Starfsfólk Hraunbúða sýndi æfingunni mikin áhuga og erum við slökkviliðsmenn mjög ánægðir með mætingu starfsfólks á þessa æfingu og kunnum þeim bestu þakkir fyrir móttökurnar. . . |



