| Ný heimasíða |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Sunnudagur, 18. janúar 2009 12:17 |
|
VELKOMIN Á HEIMASÍÐU SLÖKKVILIÐS VESTMANNAEYJA
Þá er loksins komið að því að Slökkvilið Vestmannaeyja opnar sína eigin heimasíðu á veraldarvefnum. Undirbúningur hefur staðið um þó nokkurt skeið, og hefur Jóhann Sigurður Þórarinsson séð um hönnun og upsetningu á síðunni í samstarfi við Ragnar Þór slökkviliðsstjóra. Undirritaður var svo fengin til að hafa umsjón með síðunni og hef ég verið að koma mér inn í það ferli á síðustu dögum með hjálp Jóhanns, en okkar samskipti hafa farið fram í gegnum "Skype" þar sem að hann er búsettur í Svíþjóð.
Síðan mun verða áfram í þróun næstu daga og vikur þar sem að undirritaður er enn að koma sér inn í daglegan rekstur á svona heimasíðu. Enn á eftir að bæta við heilmiklu af efni s.s. myndum af starfsmönnum, fleiri myndum úr starfi og öðrum gagnlegum upplýsingum. En allt kostar þetta tíma og vinnu og þar sem okkur finnst við vera komnir nokkuð vel af stað, ákváðum við að fara í loftið með síðuna og halda svo áfram í framhaldi af því.
Það er von okkar í Slökkviliði Vestmannaeyja að þið komið til með að hafa bæði gagn og gaman af þessari síðu, og ef það eru einhverjar ábendingar um hvað má betur fara eða hvað vantar þá endilega hafið samband á fiddi[hjá]slv.is eða komið því á framfæri þegar þið kvittið í gestabókina.
|


