| Eldvarnavikan 2008 |
|
|
|
| Skrifað af: Ragnar Þór Baldvinsson |
| Fimmtudagur, 11. desember 2008 16:47 |
|
Eins og undanfarin ár stóð Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna fyrir eldvarnaviku í grunnskólum landsins. Sérstök áhersla var lögð á kynningu brunavarna fyrir 8 ára börn og fengu þau sérstakt heimaverkefni til úrlausnar með foreldrum sínum. Lausnir verða síðan metnar, dregið úr réttum lausnum og vegleg verðlaun veitt. Í tilefni vikunnar var börnum hér í Eyjum boðið í heimsókn á slökkvistöðina þar sem farið var yfir helstu þætti í brunavörnum heimilisins. Einnig komu Lionsmenn færandi hendi og gáfu börnunum litabækur tengdar brunavörnum heimilisins. Í framhaldi af þessari heimsókn barnanna viljum við slökkviliðsmenn hvetja íbúa í Eyjum að yfirfara eftirfarandi: Reykskynjara, Slökkvitæki og eldvarnateppi. Einnig er áríðandi að fjölskyldan hugleiði flóttaleið ef eitthvað kemur uppá.
|
| Síðast uppfært: Laugardagur, 17. janúar 2009 00:18 |


