Þú ert hér: Heim Fréttir SKED-börur
SKED-börur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 19. janúar 2012 20:35

Eftir tvö alvarleg vinnuslys um borð í fiskiskipum á síðasta ári þar sem bjarga þurfti einstalingum úr þröngum rýmum við erfiðar aðstæður kom það berlega í ljós að þörf var á sérhæfðum og meðfærilegum búnaði sem hægt væri að nota við slíkar aðstæður.

Í framhaldinu var rætt við tvö stærstu útgerðarfélögin í bænum þ.e. Vinnslustöðina og Ísfélagið um aðkomu þeirra að málinu og varð það úr að þessi félög keyptu sitthvora "Sked-böruna" og yrði önnur staðsett í sjúkrabílnum en hin í fyrsta útkallsbíl slökkviliðsins.

Sked-börurnar eru ákaflega hentugar þegar bjarga þarf fólki úr þröngum og erfiðum rýmum þar sem sjúklingnum er hreinlega pakkað inn í börurnar og þær síðan hertar utan um hann.  Með þessu móti er hægt að renna börunum yfir ójöfnur, upp/niður tröppur o.fl.  Einnig er hægt að hífa sjúkling í börunum bæði lóðrétt og lárétt sem er hentugt ef þarf að koma mönnum upp úr t.d. lest á skipum o.fl.

Slökkvilið Vestmannaeyja og Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum vilja koma á framfæri þakklæti til Vinnslustöðvarinnar og Ísfélagsins fyrir þessa höfðinglegu gjöf.