| Útkall-áramót og þrettándi |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Sunnudagur, 08. janúar 2012 19:46 |
|
Þar hafði eldur kviknað í körum sem notuð voru undir leifar af flugeldum og tertum sem skotið hafði verið upp fyrr um nóttina. Varasamt getur reynst að stafla saman svona tertuafgöngum því glóð getur leynst í pappanum í töluverðan tíma eftir að búið er að skjóta þeim upp og því rétt að bleyta vel í þeim ef á að henda þeim í kör eða gáma strax eftir notkun. Einhverjar minniháttar skemmdir urðu á grindverki sem körin stóðu upp við svo og á körunum sjálfum.
Að morgni föstudagsins 6.jan(þrettándinn) fór svo hluti liðsins að Týsheimili þar sem óskað var eftir aðstoð við vatnshreinsun, en mikið magn af vatni hafði flætt um öll gólf á neðri hæð hússins m.a. íþrótta- og tækjasal. Töluverðar leysingar höfðu verið daginn áður og um nóttina og hafði myndast lón á bak við húsið sem síðan komst undir klæðningu á íþróttasalnum og inn með fyrrgreindum afleiðingum. Hreinsunarstarf tók rúmlega tvo klukkutíma en umfang skemmda var ekki komið nægilega vel í ljós. |



Fyrsta útkall ársins 2010 barst slökkviliðinu rétt rúmlega fimm, aðfaranótt fyrsta janúar s.l. þegar tilkynnt var um eld í körum við Illugagötu 31.