| Útkall-Drífandi |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 03. desember 2011 15:17 |
|
Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði út um glugga á annarri hæð og var mikill reykur og hiti kominn um allt hús. Í fyrstu var óttast að allt að fjórar manneskur væru innandyra og var lagt kapp á að hefja leit í herbergjum sem allra fyrst en það reyndist erfitt vegna gríðarlegs hita. Skömmu síðar fékkst það svo staðfest að enginn af íbúum hússins væri innandyra og gátu menn þá farið að einbeita sér að því að berjast við eldinn og reykræsta húsið. Var eldurinn bundinn við syðri hluta hússins en þar eru timburloft á milli hæða og gömul timburklæðning á veggjum og því þurfti að hafa varann á vegna hrunhættu, en ofan á annarri hæðinni er gríðarstór sólskáli úr járni og gleri. Slökkvistarf gekk vel og tókst að koma í veg fyrir að eldurinn kæmist í norðurhluta byggingarinnar sem og í næstu hús og var "formlegu" slökkvistarfi lokið á sjötta tímanum um morguninn. Var vakt sett við staðinn því búist var við því að eldurinn gæti tekið sig upp aftur sökum þess að ekki þótti ráðlegt að rífa niður of mikið af veggjum á annarri hæðinni til að rýra ekki þann litla burð sem eftir var. Vor slökkviliðsmenn því enn á slökkvistöðinni að fara yfir búnaðinn þegar seinna útkallið kom rétt rúmlega sjö og var sá eldur aðalega bundinn við eitt herbergi og tókst fljótt að ráða niðurlögum hans. Húsið var svo vaktað fram eftir degi jafnframt því sem haldið var áfam að hreinsa upp vatn af fyrstu hæð hússins en ljóst er að gríðarlegar skemmdir hafa orðið á húsnæðinu bæði af völdum elds og vatns en í norðurhlutanum urðu aðallega hita og reykskemmdir, en líklegt þykir að kveiknað hafi í út frá þurrkara sem staðsettur var í þvottahúsi á annarri hæð. Við slökkvistarfið naut slökkviliðið aðstoðar fjölmargra einstaklinga þ.á.m. körfubílstjóranna og starfsmanna ISAVIA og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. |



Allt tiltækt lið Slökkviliðs Vestmannaeyja auk slökkvibíls ISAVIA af flugvellinum var kallað út klukkan rúmlega þrú, aðfaranótt miðvikudagsins 30. nóv. s.l. þegar tilkynnt var um eld í Bárustíg 2 "Drífanda" en þar er til húsa bæði gistiheimili og bókaverslun.