Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-Ísnet
Útkall-Ísnet Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 08. nóvember 2011 23:44

isnet-frettSlökkviliðið var ræst út laust eftir klukkan tíu í kvöld þegar tilkynning barst um að eldur logaði í síldarnót á plani netaverkstæðis Ísnets.

 

Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem logaði á tiltölulega litlu svæði en þó er ljóst að um töluverðar skemmdir er að ræða þar sem verð á svona veiðarfærum hleypur á tugum milljóna króna.

Það var árvökull vegfarandi sem tilkynnti Neyðarlínunni um brunann og sem betur fer uppgötvaðist hann nógu snemma því að gríðarlega erfitt getur verið að ráða niðurlögum elds þegar hann nær að læsa sér í síldar-og loðnunætur.

Eldsupptök eru ókunn!!!!      (MYNDIR)