Þú ert hér: Heim Fréttir Þing slökkviliðsstjóra 2011
Þing slökkviliðsstjóra 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Miðvikudagur, 02. nóvember 2011 20:06

slokkvistjorar-frettHið árlega þing slökkviliðsstjóra var haldið í Vestmannaeyjum helgina 21-23. oktober s.l.

Á þingið mættu 25. slökkviliðs-og varaslökkviliðsstjórar víðsvegar af af landinu og báru saman bækur sínar en meðal annars var skipt um stjórn og formann þar sem Kristján Einarsson hjá Brunavörnum Árnessýslu lét af störfum eftir áralanga setu sem formaður en við af honum tók Jón Viðar Matthíasson hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

En það var ekki bara fundað alla helgina heldur var Ragnar Þór Baldvinsson sl:stjóri í Vestmannaeyjum búinn að skipuleggja þétta dagskrá fyrir fundargesti og maka þeirra þar sem meðal annars var farið á byggðasafnið, rútuferð um eyjuna og fleira.

Formlegheitunum lauk svo með kvöldverði og skemmtun á laugardagskvöldinu og voru gestir og skipuleggjendur sáttir og ánægðir með góða helgi.(Myndir)

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. nóvember 2011 20:36