| Útkall-Ásavegur 1 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Þriðjudagur, 04. október 2011 18:40 |
|
Enginn eldur var laus en töluverður reykur var kominn um alla íbúðina sem var reykræst í framhaldinu og gekk það bæði fljótt og vel. Það virðist því aldrei vera of oft brýnt fyrir fólki að hafa hugann við það sem það er að gera því að augnabliks athugunarleysi getur orðið að stórtjóni á örfáum mínútum.
|



Slökkviliðið var ræst út laust fyrir klukkan hálf fimm í dag þegar óskað var eftir reykræstingu að Ásavegi 1. þar sem húsráðandi hafði gleymt potti á eldavél.