Þú ert hér: Heim Fréttir Sumaruppgjör
Sumaruppgjör Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Mánudagur, 26. september 2011 22:05

alsey-frettÞá er loksins komin hreyfing aftur á síðuna eftir rólegheita sumar og tæknilega erfiðleika sem hafa hrjáð okkur s.l. vikur.

 

Sumarið sem nú var að líða var eitt það allra rólegasta hjá slökkviliðinu í langan tíma, en síðasta útkall vegna elds/reyks var í mars.

Tækjahópurinn var hins vegar ræstur út í nokkur útköll m.a. þegar kvartað var undan bensínlykt sem barst upp um holræsi á Hásteinsveginum.  Ekki tókst að finna orsakir lyktarinnar og voru holræsin skoluð út til að koma í veg fyrir frekari uppgufun á bensíni.

Tvö útköll voru svo vegna vinnuslysa, annars vegar í fiskvinnslunni Godthaab í Nöf þar sem ungur  drengur hafði fest höndina í marningsvél og svo hins vegar um borð í Álsey VE, en þar hafði maður misst meðvitund vegna kolsýrlingseitrunar ofan í lest þegar unnið var við löndun í ágúst s.l.

Mánudaginn 19. sept s.l. fengum við svo beiðni um aðstoð vegna vatnsleka að Hólagötu 26, en þar hafði kaldavatnslögn gefið sig með þeim afleiðingum að ökkladjúpt vatn hafði flætt um alla íbúð.  Töluverðan tíma tók að hreinsa upp allt vatnið og forða innanstokksmunum frá frekara tjóni en ljóst er að  íbúðin er töluvert skemmd.

Af öðrum málum er það að frétta að "nýi" tankbíllinn okkar er kominn í nothæft ástand þó enn sé talsverð vinna eftir og erum við enn að bíða eftir ´"sérfræðingi af suðurnesjunum" til að klára málið.  Sá möguleiki er þó fyrir hendi að bíllinn/bílarnir og restin af búnaðinum verði orðin ónýtur áður en hann kemst í lag þar sem húsnæðið okkar heldur ekki sjó(í orðsins fyllstu merkingu).

Sjúkrabíllinn hefur verið staðsettur á slökkvistöðinni síðan 1. maí þegar Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum HSV, tók við rekstrinum úr höndum lögreglunnar.  Hefur þetta nýja fyrirkomulag komið vel út og hleypt meira lífi í slökkvistöðina en töluverður erill er búinn að vera hjá sjúkraflutningamönnum í sumar.  Einnig fara þessir málaflokkar vel saman og styrkja hvorn annan þar sem að  meirihluti sjúkraflutningamanna eru einnig slökkviliðsmenn(eins og staðan er í dag).

Vetraræfingarnar hefjast svo væntanlega í næsta mánuði og verður æfingalistinn birtur hér á síðunni auk þess að verða sendur heim til manna.(Myndir)