Þú ert hér: Heim Fréttir Sjúkrabíllinn á slökkvistöðina
Sjúkrabíllinn á slökkvistöðina Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 30. apríl 2011 20:48

Breytingar verða á sjúkraflutningum í Vestmannaeyjum frá og með 1. maí þegar lögreglan, sem sinnt hefur þessum málaflokki hingað til hættir, og Heilbrigðiststofnunin í Vestmannaeyjum (HSV) tekur við rekstrinum.

 

Náðst hefur samkomulag á milli HSV, Vestmannaeyjabæjar og slökkviliðsstjóra um að bíllinn og starfsmenn fái aðstöðu í slökkvistöðinni þar til endanleg staðsetning bílsins verður ákveðin.

Starfsmennirnir sem koma víða að, m.a. frá Slökkviliði og Björgunarfélaginu eru allir löggiltir sjúkraflutningamenn og hafa reynslu af sjúkraflutningum m.a. í Vestmannaeyjum og Reykjavík sem og í sjúkraflugi.

Þó svo að það þrengi aðeins að okkur á slökkvistöðinni með þessum tilfærslum er það engu að síður gleðilegt að sjá sjúkrabílinn staðsettann inni á slökkvistöð, því klárlega eiga þessir tveir málaflokkar (slökkvilið/sjúkraflutningar) heima saman.(Myndir)