| Útkall-Huginn VE |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 20. apríl 2011 22:48 |
|
Þrír áhafnameðlimir sem voru við vinnu í dælrými, fremst og neðst í skipinu misstu skyndilega meðvitund eftir að þeir tóku i sundur sjólögn fyrir lestarkælikerfi skipsins með þeim afleiðingum að mikil kolsýrlingseitrun varð í rýminu. Það vildi mönnunum til happs að fjórði áhafnameðlimurinn kom á staðinn í þann mund sem þeir misstu meðvitund og sá hvað var að gerast og gat brugðist strax og hárrétt við með því að koma öndunarbúnaði til mannanna og kalla síðan á hjálp. Þegar slökkviliðið kom á staðinn voru læknir og lögreglan þegar mætt og tveir af mönnunum komnir til meðvitundar en sá þriðji var enn rænulítill og tók talsverðan tíma að ná honum upp úr mjög þröngu rými sem er undir pöllum og rörum, en þangað hafði hann fallið þegar hann missti meðvitund. Allir voru mennirnir fluttir á sjúkrahús þar sem tveir þeirra eiga að vera undir eftirliti í nótt, en sá þriðji sem komst til fullrar meðvitundar á sjúkrahúsinu, var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari rannsókna. (myndir)
|



Eins og flestir vita sem fylgjast með fréttunum þá varð alvarlegt vinnuslys í dag um borð í Huginn VE þar sem hann lá við bryggju í Vestmannaeyjum.