Þú ert hér: Heim Fréttir Gleðilegt sumar
Gleðilegt sumar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 19. apríl 2011 20:58

Þá er vetraræfingunum formlega lokið og tekur nú við rúmlega mánaðarfrí áður en helgarvaktir sumarsins hefjast.

 

Góð mæting var á síðustu æfingu vetrarins og var tækifærið notað og hópnum skipt í tvennt, þar sem annar helmingurinn fór í kalda reykköfun meðan að hinir notuðu tækifærið og prófuðu nýju sundlaugina sem við vorum að fá okkur.

Sundlaugin, sem í raun er 10.000 ltr. vatnsforðabúr var sett upp á planinu fyrir framan slökkvistöðina og var "nýji" tankbíllinn notaður til að fylla hana.

Af tankbílamálum er það að frétta að búið er að selja þann gamla og er sá "nýji" sem er af Scanina gerð orðinn notkunarhæfur þó enn eigi eftir að ganga frá ýmsu smálegu en nánari lýsingu af honum ásamt myndum munum við setja inn um leið og hann er klár. (fleiri myndir af sundlauginni)

Gleðilegt sumar:)