Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-Brekastígur 28
Útkall-Brekastígur 28 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Föstudagur, 01. apríl 2011 12:15

Laust fyrir klukkan fimm í morgun fékk slökkviliðið útkall þar sem tilkynnt var um heitavatnsleka að Brekastíg 28.

 

Þegar slökkviliðið kom á staðinn var búið að skrúfa fyrir inntakið en mikill hiti og raki var um allt hús. Var því strax farið í að forða verðmætum og hreinsa upp það vatn sem var á gólfunum.

Eigendur hússins, sem er timburhús á þremur hæðum eru að gera það upp og hafa endurbætur staðið í nokkurn tíma og var farið að sjá fyrir endann á þeim.

Líklegast er um töluvert tjón að ræða, bæði á húsinu sjálfu sem og innanstokksmunum af völdum hita og raka.