Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-Foldahraun 38
Útkall-Foldahraun 38 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 24. mars 2011 11:22

Slökkviliðið var ræst út rétt fyrir klukkan hálf eitt í nótt þegar tilkynnt var um eld í raðhúsaíbúð að Foldahrauni 38 og að hugsanlega væri fólk inni.

 

Þegar slökkviliðið kom á staðinn var lögregla þegar mætt og hafði slökkt eldinn sem reyndist vera í potti sem húsráðandi hafði gleymt á eldavélinni.

Húsráðanda sakaði ekki en töluverður reykur var í íbúðinni og var reykur farinn að berast í næstu íbúð.

Íbúðin var reykræst og eru skemmdir minniháttar.(myndir)