Þú ert hér: Heim Fréttir Eldvarnagetraun 2010
Eldvarnagetraun 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Mánudagur, 28. febrúar 2011 19:20

Fyrir skömmu síðan var dregið úr réttum lausnum í eldvarnagetraun sem haldin var í nóvember á síðasta ári.

 

Getraunin var í tengslum við eldvarnavikuna sem Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna heldur ár hvert, en þar eru börnum kynntar þær hættur sem af eldi geta stafað og rétt viðbrögð í kjölfarið.

Einn af vinningshöfunum er frá Vestmannaeyjum, Gunnar Hrafn Gíslason og kom hann við á slökkvistöðinni á laugardaginn til að veita verðlaununum viðtöku en verðlaunin að þessu sinni voru viðurkenningarskjal og tónlistaspilari.

Slökkvilið Vestmannaeyja óskar Gunnari til hamingju með verðlalunin og þakkar öllum 8. ára börnum í Hamarskóla fyrir þátttökuna.(myndir)