Þú ert hér: Heim Fréttir Útköll-Þrettándagleði
Útköll-Þrettándagleði Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 08. janúar 2011 21:48

Þrettándagleðin var haldin með miklum látum í Vestmannaeyjum nú í kvöld og samfara henni byrjaði nýtt útkallsár hjá slökkviliðinu, en farið var í sex sinuútköll á rúmum tveimur tímum.

 

Fyrsta útkallið kom laust fyrir klukkan hálf átta þegar flugeldur sprakk í grasbrekkunni við Hástein með þeim afleiðingum að töluverður sinueldur gaus upp.  Greiðlega gekk að slökkva í sinunni en þá barst annað útkall um sinueld við íþróttamiðstöðina en þar hafði eldurinn slökknað þegar að var komið.

Tilkynnt var svo um minniháttar sinuelda á fjórum stöðum til viðbótar víðsvegar um bæinn áður en yfir lauk, en þegar þetta er skrifað er ennþá verið að skjóta upp flugeldum og mikill þurrkur er í grasinu svo að spyrjum að leikslokum en vonum að þessi törn sé búin í þetta skiptið.

Alla þessa sinuelda má væntanlega rekja beint til flugeldanna og þá ekki síst til neyðarflugeldanna sem skotið er á loft en falla síðan logandi niður áður en þeir ná að brenna upp, en það er skoðun greinarhöfundar að banna ætti notkun á þessum svokölluðum "skiparakettum" þ.e. rauðu sólunum yfir íbúðabyggð þar sem vitað er að þær hafa valdið slysum og jafnvel stórbrunum þegar þær falla logandi til jarðar.