| Bílvelta |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Mánudagur, 13. desember 2010 19:41 |
|
Slysstaður reyndist vera við húsið Höfðaból og var bifreiðin þar á hliðinni fyrir neðan veginn, og hafði eldur blossað upp í vélarrýminu eftir veltuna. Lögreglan hafði hins vegar náð að ráða niðurlögum eldsins að mestu með handslökkvitækjum en til öryggis var sprautað yfir vélina og hún kæld niður auk þess sem rafgeymir var fjarlægður úr bílnum til að koma í veg fyrir frekari hættu á að eldur kæmi upp aftur. Fjögur ungmenni voru í bílnum og sluppu þau öll ómeidd og má kannski helst þakka það því að þau voru öll í bílbeltum.(myndir) |



Slökkviliðið var ræst út laust fyrir kl. hálf tvö í nótt þegar Neyðarlínan tilkynnti um eld í bíl sem farið hafði út af á leiðinni út í Stórhöfða.