Þú ert hér: Heim Fréttir Eldvarnavikan 2010
Eldvarnavikan 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Miðvikudagur, 01. desember 2010 20:04

Eins og undanfarin ár stóð Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna, fyrir eldvarnaviku í grunnskólum landsins. Sérstök áhersla var lögð á kynningu brunavarna fyrir 8 ára börn og fengu þau sérstakt heimaverkefni til úrlausnar með foreldrum sínum.

 

Farið verður síðan yfir verkefnin, dregið úr réttum lausnum og vegleg verðlaun veitt. Í tilefni vikunnar var börnum hér í Eyjum boðið í heimsókn á slökkvistöðina, þar sem farið var yfir helstu þætti í brunavörnum heimilisins. Þá var sýndur búnaður reykkafara og hvernig hann er undirbúinn fyrir reykköfun. Einnig kom  formaður  Lions færandi hendi gaf  börnunum litabækur tengdar brunavörnum heimilisins.

Öll fá börnin gefins bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg en bókin heitir einmitt Brennu-Vargur og er spennusaga, en í henni eru líka góðir fróðleiksmolar fyrir börnin um eldvarnir.

 Í framhaldi af þessari heimsókn barnanna viljum við slökkviliðsmenn hvetja íbúa í Eyjum að yfirfara eftirfarandi:

Reykskynjara,

Slökkvitæki.

Eldvarnateppi.

Einnig er áríðandi að fjölskyldan hugleiði flóttaleið ef eitthvað kemur uppá.

 

 Slökkviliðið óskar bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. (Myndir)