Þú ert hér: Heim Fréttir Golfmót LSS 2010
Golfmót LSS 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 07. september 2010 18:02

Hið árlega golfmót Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna var haldið hér í Eyjum helgina 13-15. ágúst s.l.

 


 Mótið var undirbúið af slökkviliðsmönnum á Keflavíkurflugvelli og aðal driffjöðrin var Einar Már Jóhannesson. Mótið var haldið í fínasta veðri á glæsilegum golfvelli í Eyjum. Þátttaka var ágæt eða um 50. manns.  A-sveit golfklúbbs Akraness sigraði í sveitakeppninni en í einstaklingskeppni sigraði Einar Már á 74 höggum brúttó.

Síðar um daginn buðu slökkviliðsmenn í Eyjum keppendum og gestum á slökkvistöðina til að þiggja veitingar þar sem boðið var  upp á söl og létta drykki.  Um kvöldið var svo kvöldverður og verðlaunaafhending sem stóð í langan tíma þar sem mikið var af vinningum, s.s listflug með Birni Thoroddsen og herraklipping á suðurnesjum.

Við Eyjamenn þökkum félögum og gestum fyrir góða helgi og góða heimkomu.(myndir frá heimsók á slökkvistöðina)