| Heimsókn frá Norðurey |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 28. ágúst 2010 13:40 |
|
Farið var á Skanssvæðið þar sem tengt var við brunahana og monitorinn á bílnum notaður auk þess sem "vatnsveggurinn" var prófaður. Það leiðinlega óhapp varð þó að einn af okkar mönnum slasaðist þegar hann var á leið á æfinguna, þegar mótorhjól sem hann var á rann til með þeim afleiðingum að hann datt í götuna aðeins nokkra metra frá slökkvistöðinni. Kom það sér því vel að hafa menn á staðnum sem hafa reynslu af sjúkraflutningum en þeir Jóhann og félagar brugðust hárrétt við og hlúðu að hinum slasaða þangað til sjúkrabíll kom á vettvang, en af okkar manni er það að frétta að hann reyndist rifbeinsbrotinn og eitthvað slasaður á vinstri öxl en hversu mikið er ekki fyllilega komið í ljós ennþá.
Viljum við færa þeim félögum bestu þakkir fyrir komuna og aðstoðina á slysavettvangi:)
|



Laugardaginn 21. ágúst s.l. fengum við heimsókn frá nokkrum kollegum okkar á Norðurey þegar þeir Jóhann K. Jóhannsson sl.stjóri á Blönduósi, Magnús B. Baldursson og Ægir Sævarsson frá Brunavörnum Árnessýslu komu í heimsókn til okkar og tóku þátt í æfingunni með okkur.