| Tórshavnar slökkilið |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Þriðjudagur, 20. júlí 2010 23:05 |
|
Í slökkviliðinu eru fimmtán menn sem ganga vaktir auk fimmtán annara sem eru hlutastarfandi og sinna þeir hefðbundnum slökkvistörfum, en heilsugæslan sér um sjúkraflutningana. Þegar við komum á stöðina var nýliðaæfing í gangi og bílgeymslan hálffull af reyk (úr reykvél) og skyggni þar ekki mikið auk þess sem hluti bílaflotans var því miður úti í verkefnum, en miðað við það sem við sáum og okkur var sagt þá eru þeir mjög vel tækjum búnir. Aðstaðan fyrir starfsmenn og tæki er mjög góð hjá þeim og var sérstaklega gaman að skoða gömlu bílana þeirra sem þeir hafa sjálfir verið að gera upp á vöktunum.(myndir) |



Greinarhöfundur brá sér í stutt frí til Færeyja í síðasta mánuði og notaði þá tækifærið og heimsótti slökkviliðið í Tórshavn þar sem slökkviliðsmaðurinn Kaj Niclasen sýndi okkur aðstöðuna.