Þú ert hér: Heim Fréttir Slökkviliðsmenn í verkfall?
Slökkviliðsmenn í verkfall? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 16. júlí 2010 21:55

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna boðar til verkfalls föstudaginn 23. júlí nema samningar takist um bætt launakjör félagsmanna.

 

Viðræður hafa staðið yfir um nokkurt skeið á milli launanefndar sveitarfélaga og slökkviliðsmanna en upp úr viðræðunum slitnaði í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti meirihluti félagsmanna að hefja verkfallsaðgerðir fáist ekki viðunandi niðurstaða í málið.

Slíkt verkfall hefði alvarlegar afleiðingar á samfélagið.  Til dæmis yrðu aðeins 22 menn á vakt í einu á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Verkfallið mun standa milli klukkan 8 til 16 dag hvern og verður einungis neyðartilfellum sinnt. Ekki verður farið í útköll sem þola bið. 

Náist ekki samningar verður boðað til allsherjarverkfalls í september.(mbl.is)