Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall rafstrengur
Útkall rafstrengur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 08. júlí 2010 20:50

Neyðarlínan kallaði slökkviliðið út kl: 17.30 í dag þar sem tilkynnt var um eld í rafstreng að Heiðarvegi 60.

 

Þegar að var komið reyndist eldurinn vera í rafstreng úti í götu en ekki í húsnæðinu sjálfu.  Töluverðar framkvæmdir á vegum Hitaveitu Suðurnesja standa nú yfir í götunni, en verið er að skipta út vatns- og raflögnum en strengurinn sem brann er gamall og voru einungis tvö hús eftir á honum.

Svo virðist sem skammhlaup hafi orðið í strengnum með þeim afleiðingum að hann ofhitnaði og á tímabili logaði í honum eldur.

Starfsmenn HS-veitu voru hins vegar fljótir á vetvang og voru búnir að slá út rafmagninu eftir stutta stund.  Engar skemmdir hlutust af aðrar en á strengnum sjálfum en töluverð hætta var þó fyrir hendi ef einhver hefði snert strenginn eða reynt að slökkva eldinn með vatni.