Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall Helgafellsbraut 18
Útkall Helgafellsbraut 18 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 01. júlí 2010 18:46

Slökkviliðið var ræst út rétt fyrir klukkan hálf níu í morgun þegar óskað var eftir aðstoð vegna vatnsleka í kjallaraíbúð að Helgafellsbraut 18.

 

Talsvert mikið vatn var um öll gólf í íbúðinni þegar að var komið, en fljótt og vel gekk að hreinsa það upp en ljóst er þó að töluvert tjón hefur orðið á gólfefnum og húsbúnaði.  

Orsakir lekans voru ekki að fullu kunnar í morgun en líklegt þykir að garðslanga hafi losnað af krana í þvottahúsi með fyrrgreindum afleiðingum.