| Útkall-Birkihlið 4 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Fimmtudagur, 24. júní 2010 19:28 |
|
Þegar slökkviliðið kom á staðinn var búið að ráða niðurlögum eldsins sem reyndist lítill en reykræsta þurfti húsið. Eldsupptök reyndust vera kunnugleg, en pappakassi sem settur hafði verið upp á eldavél hafði rekist utan í einn rofan með þeim afleiðingum að það kviknaði á einni hellunni. Það virðist því miður aldrei vera of oft brýnt fyrir fólki að leggja aldrei neitt ofan á eldavél/helluborð sem ekki á þar heima. |



Slökkviliðinu barst enn eitt "(eitthvað ofan á eldavél sem ekki á að vera þar)" útkallið á fimmta tímanum í dag þegar Neyðarlínan sendi þau boð að mikill reykur kæmi út um glugga á efri hæð.