Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-umferðarslys
Útkall-umferðarslys Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 08. júní 2010 14:24

Laust fyrir klukkan þrjú í nótt óskaði lögreglan eftir aðstoð slökkviliðsins vegna umferðarslyss sem hafði orðið á gatnamótum Kirkjuvegar og Birkihlíðar.

Tildrög slyssins eru greinarhöfundi ókunn á þessari stundu en þegar slökkviliðið kom á vettvang var búið að fjarlægja bifreiðina sem lent hafði á umferðarmerki með þeim afleiðingum að lekið hafði úr henni smurolía og annar vökvi sem slökkviliðið þurfti að hreinsa upp. Engin slys munu hafa orðið á fólki.

                                                     (Myndin tengist fréttinni ekki)