Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-Hafnarskrifstofur
Útkall-Hafnarskrifstofur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 05. júní 2010 18:19

Slökkviliðið var ræst út laust fyrir klukkan tvö í dag þegar tilkynnt var um reyk sem steig upp af þakinu á hafnarskrifstofunum.

Var slökkviliðið mætt á staðinn stuttu síðar og við nánari eftirgrennslan reyndist reykurinn vera af skiparakettu (fallhlífarblysi) sem skotið hafði verið á loft í tengslum við hátíðarhöld sjómannadagsins en lenti svo logandi á þakinu og brann þar upp.

Engar teljandi skemmdir hlutust af fyrir utan þann stað sem flugeldurinn lenti á en þar sviðnaði þakjárnið á hluta og má það teljast heppni að ekki fór ver, en töluverð tjón hafa hlotst af þegar þessir flugeldar lenda óbrunnir í og við fólk og mannvirki, og óteljandi öll tilvikin þar sem litlu munar, eins og í dag.

Það er skoðun geinarhöfundar að notkun þessara flugelda eigi að banna í og við íbúabyggð nema um algjöra neyð sé að ræða.