| Útkall-Brimhólabraut 33 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 26. maí 2010 21:01 |
|
Þegar slökkviliðið mætti á vettvang skömmu síðar hafði lögreglan náð að slökkva eldinn sem var í eldhúsi íbúðarinnar (nánar tiltekið eldavél) en mikill reykur var kominn um alla íbúð, auk þess hafði komið gat á vatnsrör sem staðsett var nálægt eldsupptökum og var komið töluvert vatn á eldhúsgólfið áður en náðist að loka fyrir inntakið. Greiðlega gekk að reykræsta íbúðina og hreinsa upp vatnið en ljóst er að töluverðar skemmdir hafa orðið kjallaranum sökum hita og reyks, ekki varð hins vegar vart við neinn reyk á efri hæð hússins. Húsráðandi sem er ung kona, náði að forða sér út með eins árs gamlann son sinn þegar hún varð eldsins vör og sakaði þau ekki en líklegast þykir að eldsupptök megi rekja til þess að kveikt hafið verið á eldavélinni í ógáti með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í pizza-kassa sem lá ofan á hellunum.(myndir)
|



Slökkviliðið var ræst út af Neyðarlínunni rétt eftir klukkan hálf níu í morgun, þar sem tilkynnt var um eld í kjallaraíbúð að Brimhólabraut 33.